Sigum Englunum á þá...

main_logo

Margir hafa nú áhyggjur af uppgangi Hells Angels hér á landi því þeir telja að Englarnir munu hér fremja hrikalega glæpi á borð við fjársvik og jafnvel morð. En hvað er morð? Er það ekki að vera valdur að dauða annars manns.

Hvað skyldu Jón Ásgeir, Björgólfur Thor og Hannes Smárason vera valdir að dauða margra Íslendinga með svikum sínum gagnvart Íslensku þjóðinni? Hvað skyldu þeir vera búnir að myrða marga og hvað skyldu þeir eiga eftir að myrða marga sem í raun falla fyrir eigin hendi þar sem öllu hefur verið kippt undan fótum þeirra?

Hvað skydu útrásarfífl á borð við Bjarna Ármannsson vera völd að sundrung margra fjölskyldna, hjónaskilnuðum, upplausn á heimilum og hörmungum í lífi æsku margra barna með aðgerðum sínum?

Þeir sitja sveittir í velmögnun sinni sem er óheiðarlega fengin og njóta þess að eiga Rolls Royce í Englandi og þyrlur til að ferðast á þegar þjóðin sveltur.

Nú er spurning hvort Ríkislögreglustjóri ætti að semja við englana um að þeir fái sanngjarnan hlut fyrir að innheimta þessar illa fengnu eignir og þetta illa fengna fé sem búið er að stela frá þjóðinni. Ég er nokkuð viss um að það bæri meiri árangur en það sem okkar "ástkær" ríkisstjórn er að gera í dag með (litlum sem engum) aðgerðum sínum.

Lifið heil.


mbl.is Eignir Íslendinga í skattaskjólum jukust um 40%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jack Daniel's

Góður :D

Jack Daniel's, 10.9.2009 kl. 17:45

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ekki slæm hugmynd hjá þér...

Jónína Dúadóttir, 10.9.2009 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband