Terminator-Mótorhjól

terminator-motorcycle.jpgHér gefur að líta prototýpu (frumgerð) að nýjasta mótorhjólinu sem verður notað í næstu mynd um tortímandann ógurlega. Hjólið á semsagt að vera hluti af varnarkerfi Skynet sem er óvinur mannkyns í þessum mögnuðu myndum.

Óhætt er að segja að hjólið sé nokkuð magnað í útliti og minnir einna helst á þau hjól sem oft eru nefnd Rat-bike, en þau eru frekar ógeðsleg á að líta og bannað er að þrífa þau.

Það er eiginlega bara hægt að sjá á afturljósinu hvernig þetta snilldar mótorhjól snýr, þ.e. í hvaða átt því er ekið. Upprunann þekki ég ekki en felgurnar eru sennilega af Kawasaki hjóli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband